

Slapp - Íslenskur samfélagsmiðill
Samfélagsmiðill hannaður sérstaklega fyrir Ísland. Deildu augnablikum, vertu í sambandi og fylgstu með því sem er að gerast, allt á einum stað.
Slapp er samfélagsmiðill gerður fyrir Íslendinga, af Íslendingum. Hver einasti notandi er alvöru manneskja með kennitölu. Þannig sköpum við traust samfélag þar sem raunverulegt fólk tengist.
Deildu þínu lífi
Settu inn myndir, taggaðu vini og notaðu kannanir til að koma af stað umræðu. Þú velur hvort þú deilir með öllum eða bara vinahópnum.
Spjall sem virkar
Einkaskilaboð og hópspjall með svörum, viðbrögðum og deilingum. Þið getið svo skipulagt hittinga og viðburði beint inni í spjallinu.
Hópar með alvöru fólki
Búðu til eða gakktu í hópa í kringum áhugamálin. Opnir hópar eru aðgengilegir öllum, en lokaðir hópar leyfa þér að búa til persónulegra rými. Hver hópur hefur sinn eigin vegg, umræður og hlutverk.
Dagurinn þinn
Deildu daglegum uppfærslum, mynd og stuttum texta, til að sýna þínum nánustu hvað þú ert að gera núna. Einfalt og persónulegt.
Raunverulegt fólk -> Engir bottar
Sérhver aðgangur á Slapp er staðfestur með íslenskri kennitölu. Engir bottar, engir gerviaðgangar, bara ósvikið samfélag af raunverulegum Íslendingum.