AI Sprettur — tveggja vikna verkleg þjálfun

Gerðu alla deildina þína margfalt afkastameiri á tveimur vikum

Verkleg þjálfun á ykkar eigin verkefnum, sjálfvirknivæðing byggð með teymunum ykkar og mældur árangur. Ekki fyrirlestrar um framtíðina, heldur vinnubrögð sem virka strax á mánudaginn.
  • Teymið á bak við Slapp
  • 50+ gervigreindarlausnir frá 2025
  • Umfjöllun: RÚV, Vísir, mbl.is, Viðskiptablaðið

Staðan

Starfsfólkið þitt er nú þegar byrjað að nota gervigreind. Spurningin er hvort það kunni það.

80%

sérfræðinga á íslenskum vinnumarkaði nota gervigreind í starfi

Viska, 2025

34%

hafa fengið fræðslu um gervigreind frá vinnuveitanda

Viska, 2025

14%

íslenskra fyrirtækja hafa mótað sér stefnu um gervigreind

Hagstofa Íslands, 2025

95%

gervigreindarverkefna fyrirtækja skila ekki mælanlegum árangri

MIT NANDA

Vitlaus notkun er ekki bara glatað tækifæri. Rannsóknir sýna að hún getur gert reynt fólk hægara og aukið villur. Munurinn liggur í þjálfuninni.

Svona virkar þetta

AI Spretturinn: tvær vikur sem breyta því hvernig deildin þín vinnur

Vika 1

Færni

Þrír fyrirlestrar fyrir alla og verklegar vinnustofur í litlum hópum eftir hlutverkum (8–15 manns): fjármál æfir sig á fjármálaverkefnum, markaðsdeildin á markaðsefni. Hver einstaklingur fer heim með að minnsta kosti þrjú virk notkunartilvik í sínu eigin starfi — og skýrar reglur um örugga notkun.

Vika 2

Beiting

Við byggjum sjálfvirknivæðingar með teymunum ykkar í ykkar kerfum. Teymin velja verkflæðin, við smíðum þau saman. Á sama tíma þjálfum við 2–4 innanhúss-sérfræðinga („champions“) sem halda þróuninni áfram eftir að við förum.

Dagur 30

Mæling

Við mælum stöðuna fyrir sprettinn. Á degi 30 mælum við aftur sömu verkflæði. Þið fáið ykkar eigin tölur, ekki tölfræði úr erlendum skýrslum.

Rannsóknir

Hverju skilar rétt þjálfun? Rannsóknirnar eru skýrar.

25–56%

hraðari úrlausn einstakra verkefna

Vettvangstilraun Harvard/BCG með 758 ráðgjöfum; slembirannsókn GitHub Copilot

+40%

meiri gæði vinnu

Harvard/BCG

+43%

framför hjá þeim sem hafa minnsta reynslu

Harvard/BCG

Og sum verkflæði sem við sjálfvirknivæðum verða ekki 30% fljótari — þau hverfa alveg.

Öryggi

Örugg notkun er ekki aukaatriði, hún er grunnurinn

Í viku 0 mótum við gervigreindarstefnu með ykkar tækni- og lögfræðifólki. Þið fáið tilbúna, sniðna notkunarstefnu — verk sem tekur mörg fyrirtæki heilt ár.

  • Hvaða gögn mega fara í hvaða tól
  • Hvaða tól eru samþykkt
  • Hvernig starfsfólk sannreynir niðurstöður
  • Hvenær á ekki að treysta gervigreind

Fjármögnun

Starfsmenntasjóðir endurgreiða allt að 90% — við sjáum um umsóknina

Fræðsluhluti sprettsins fellur undir styrki starfsmenntasjóða. Sem dæmi endurgreiðir Starfsafl fyrirtækjum allt að 90% af fræðslukostnaði, að hámarki 4 m.kr. á ári. Í fría stöðumatinu kortleggjum við hvaða styrkir standa ykkur til boða — og við útbúum umsóknina fyrir ykkur.

Verð

Fast verð. Engin tímagjöld.

Smærri hópar

Allt að 15 manns

99.000 kr.

á þátttakanda

2 vikur, allt innifalið

Mælt með

Stærri hópur

Allt að 40 manns

65.000 kr.

á þátttakanda

2 vikur, allt innifalið

Sérsniðin lausn

Allt að 75 manns

53.000 kr.

á þátttakanda

2 vikur, allt innifalið

Til samanburðar kostar 18 klst. opið stjórnendanámskeið í gervigreind 299.000 kr. á mann. Starfsmenntasjóðir geta að auki endurgreitt stóran hluta fræðslukostnaðar.

Prufudagur

Heils dags verkleg vinnustofa fyrir eitt teymi (10–25 manns). Góð leið til að byrja smátt.

frá 690.000 kr.

AI félagi

Mánaðarleg áskrift eftir sprett: viðtalstímar, tólavöktun og áframhaldandi sjálfvirknivæðing.

frá 490.000 kr./mán.

Um okkur

Við erum ekki ráðgjafar sem hættu að forrita. Við byggjum á hverjum degi.

Vestra AI var stofnað í janúar 2025. Síðan þá höfum við smíðað yfir 50 gervigreindarlausnir og byggt Slapp — samfélagsmiðil sem náði til yfir 20.000 Íslendinga á innan við þremur mánuðum. Allt sem við kennum notuðum við sjálfir í sömu viku.

Kristján Leó Guðmundsson

Kristján Leó Guðmundsson

Tölvunarfræði frá HÍ (ágætiseinkunn, skiptinám við ETH Zürich), áhættustýring hjá Íslandsbanka, byggði Slapp. Verðlaunahafi á Ólympíuleikunum í eðlisfræði.

Bjarki Sigurjónsson Thorarensen

Bjarki Sigurjónsson Thorarensen

Hugbúnaðarverkfræði frá HÍ, tvö ár hjá Júní digital við smíði vefja og appa fyrir fyrirtæki, meistaranám í gervigreind við KTH í Stokkhólmi.

Algengar spurningar

Það sem flestir spyrja um

Bókaðu frítt stöðumat

90 mínútur sem borga sig strax: við kortleggjum gervigreindarnotkun, áhættur og 3 til 5 sjálfvirknivæðanleg verkflæði og skilum skýrslu innan viku. Engin skuldbinding.