Er fyrirtækið þitt hætt að þróast?
Lausnin þín notar gervigreind en hvernig notar gervigreind lausnina þína?
Ef svo er þá er mikilvægt að bregðast við því sem er að gerast núna í dag. Gervigreindin er að fá nýtt viðmót.
[ Nýtt frá Vestra ]
ChatGPT app store
Nú eru að koma öpp í ChatGPT og það opnar á alls konar ný tækifæri. Hver og einn fer að verða fyrstur til að koma sinni lausn fyrir framan notendur gervigreindar. Ef þú telur að lausnin þín eigi henti vel í ChatGPT þá endilega heyrðu í okkur og við kynnum þetta betur fyrir ykkur
Bóka kynningarfund03 / Markaðshlutdeild
Þessar nýju lausnir geta einnig verið ákveðin ógn fyrir markaðshlutdeild núverandi fyrirtækja. Þá aðallega þeirra sem bregðast ekki við og sitja kyrr hjá. Flestir hafa kynnt sér hvernig best er að koma lausninni sinni fyrir framan leitarvélar eins og Google með góðu SEO en núna er umferðin smám saman að fara meira í gegnum gervigreindarspjöll eins og ChatGPT. Því er mikilvægt fyrir okkur að gera lausnirnar okkar aðgengilegar fyrir gervigreindina þannig að þær séu enn aðgengilegar fyrir markhópinn. Því er markmið Vestra AI að koma íslenskum fyrirtækjum inn í þessa nýjung og sjá til þess að Ísland sé framarlega þegar kemur að gervigreind. Ef þú vilt fá aðstoð við að koma fyrirtækinu þínu inn í gervigreindarspjöll eins og ChatGPT þá erum við alltaf opnir fyrir að taka stuttan fund!
Bóka fría kynningu[ Nýtt frá Vestra ]
Hvað getur Vestra gert fyrir fyrirtækið mitt?
Vestra AI sérhæfir sig í nákvæmlega þessu, að gera MCP servera og viðmót (fyrir ChatGPT) ofan á þá. MCP er opinn staðall sem mállíkön og vefþjónar notast við til að eiga samskipti sín á milli. Við höfum verið að gera þó nokkur öpp fyrir gervigreindina og ætlum okkur að aðstoða íslensk fyrirtæki við að bjóða uppá sínar vörur í gegnum hana.
Heyrðu í okkur